Skilmálar

Almennt

Pöntun er staðfest um leið og greiðsla hefur borist. Kaupanda er send staðfesting í tölvupósti.

Afhending og sendingarkostnaður.

Hægt er að sækja pöntun eða fá sent gegn greiðslu. Minni vörur eru sendar með Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu á vörum.

HAF STORE ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
Óski viðskipavinur eftir því að sækja vöru, er hægt að hafa samband við HAF STORE og nálgast vöru í Geirsgata 7, 101 Reykjavík. 

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Kostnaður við hverja sendingu er 1650 kr á minni einingum t.d smávöru og gjafavöru.

Ef um er að ræða stærri vörur t.d húsgögn og ljós sér HAF STORE um að panta viðeigandi sendiferðabíl sem viðtakandi borgar.

Afhendingartími á sendingum innanlands getur verið 1-2 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur verið staðfest. Varan er send heim að dyrum til kaupanda eða á næsta pósthús ef heimkeyrsla er ekki í boði í viðkomandi bæjarfélagi. Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu.

Fyrir erlendar pantanir er fólki ráðlagt að hafa samband við HAF STORE svo hægt sé að finna bestu lausn sem hentar hverri vöru. Sé vara ekki til á lager mun starfsmaður HAF STORE hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Sérpantanir

HAF STORE tekur að sér sérpanta vörur frá þeim vörumerkjum sem búðin er með og einnig á vörulínu HAF STUDIO. Við ráðleggjum viðskiptavinum á að hafa samband við info@hafstore.is til að ganga frá pöntunum.

Sérpantanir geta tekið 2-8 vikur. Farið er fram á 50% innborgun þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent, sérpöntunum er ekki hægt að skila.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Kostnaður við hverja sendingu er 1650 kr á minni einingum eins og smávöru og gjafavöru. Ef um er að ræða húsgögn, ljós eða aðra stærri hluti greiðir viðtakandi sendingarkostnað við heimkeyrslu. 

Verð

24% VSK er innifalinn í verði vörunnar og reikningar eru gefnir út með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur HAF STORE sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Best er að hafa samband við info@hafstore.is eða starfsmann í verslun.

Greiðslur

HAF STORE býður uppá greiðslu gegn millifærlslu eða í gegnum greiðslugátt Borgunar.

Ef greitt er með millifærslu fær viðskiptavinur upplýsingar með kennitölu og reikningsnúmeri HAF STORE. Pöntun er staðfest um leið og millifærsla hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan tveggja daga telst pöntun ógild. Best er að staðfesta millifærslu með því að senda kvittun úr heimbanka á info@hafstore.is. 

Annað

Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila. Allir sem versla hjá okkur verða skráðir sjálfkrafa á póstlistann hjá okkur.